Krákan krunkar úti...
31.10.2007 18:58:18 / Ofurmengunnin

afsakið hlé

Ég hef ekki getað bloggað því netið hefur legið niðri og Hjalti bannaði mér að restarta roudernum því allar stöðvarnar á Digital Íslandi voru allt í einu inni... Var svo sem í lagi, ég þurfti þá ekki að gagnast honum á kvöldin á meðan... Nei ég segi svona... 

Takk elsku vinkonur mínar og fjölskylda og Hjalþi fyrir hjálpina við útskriftina. Þið eruð númer eitt og því verður ekki breytt. Kiss - kiss. Ég skulda ykkur öllum feita graða. (Nema pabba - fyllti bílinn hans af bensíni í gær.) Takk líka allir sem mættu. Mikið var nú gaman að sjá ykkur öll. :D Öll vanræktu börnin mín. Æ lov jú oool.

Annars var útskriftarveislan laus við alla skandala. Við Rakvél reyndum oft að espa fólk upp í ruglið en það eina sem mætti teljast til skandals var að hurðarhúnn týndist af einni hurðinni. Ég sem var búin að taka pening út úr hraðbanka fyrir partýið spes til að borga hugsanlegar skaðabætur. Jæja jæja. Ég skemmti prýðisvel engu að síður. Fékk að sjá mynd af brjóstum og alles!

Túddls.

Stöllurnar saman


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 14:06:53 / Ofurmengunnin

engin fyrirsögn

Jamm og jæja. Nú eru liðnir 2 mánuðir frá því að ég bloggaði eitthvað af viti. Engu að síður hafa 57 manns heimsótt síðuna í dag... Það staðfestir einungis grun minn um að þessir teljarar séu nú eeeeitthvað mis. Fyrir þá staðföstu ætla ég engu að síður að blogga um hvern einasta dag síðustu 2 mánuði. Here goes:

  • 24. ágúst: skrifa ritgerð
  • 25. ágúst: skrifa ritgerð
  • 26. ágúst: skrifa ritgerð
  • 27. ágúst: skrifa ritgerð
  • 28. ágúst: skrifa ritgerð og barnaafmæli hjá Elísabetu Maríu
  • 29. ágúst: skrifa ritgerð
  • 30. ágúst: skrifa ritgerð
  • 31. ágúst: skrifa ritgerð
  • 1. september: skrifa ritgerð og barnaafmæli hjá Júlíusi Kára
    (Ath að barnaafmæli eru orðinn tíðari viðburður í vinahópnum en áfengisdrykkjuselskapur. Þykir mér það hnignun mikil og er ég farin að reyna að koma mér inn í vinahóp litlu systur minnar í staðinn þar sem hún er flutt til Akureyrar. Staðkvæmdarvara /-vinkona.)
  • 2. september: skrifa ritgerð
  • 3. september: ritgerð í prentun
  • 4. september: gleðidagur - skil á ritgerð!
  • 5. september: sótti norska(n) frænda minn út á flugvöll og keyrði með honum norður í sveit til smalamennsku. var vegna anna ekki búin að undirbúa nein umræðuefni (önnur en einkamálarétt) og ekki búin að rifja upp neina norsku. 6 klukkutímar. Fékk einnig hraðasekt upp á 30 milljónir. (Hefði a.m.k. eins getað verið 30 milljónir miðað við fjárhag minn.)
  • 6. september: pabbi og mamma smíðuðu í sumar nýjan pall og komu fyrir heitum potti í garðinum í sveitinni. Nú vantar bara þráðlaust net og þá er ég flutt þangað! 6. september fór mikið í pottinn.
  • 7. september: aftur suður. handboltaleikur hjá hjalapenjo.
  • 8. september: reunion hjá Verzló! ég fór fyrr um daginn á annan handboltaleik hjá hjalapenjó þannig að ég mætti 2 klst seinna en aðrir í bekkjarfyrirpartýið (sem byrjaði kl. 5). þar fyrir sakir kepptust bekkjarfélagar mínir við að koma mér í gírinn. ég man ekki fjölda áfengra drykkja lengur en í minningunni er ég að hreykja mér af því að vera búin að taka 10 staup (sem hefur þá gerst á 2 klst). minningarnar frá kvöldinu eru því glefsukenndar. ég man að við fórum með leigubíl á reunionið, nema hvað leigubíllinn fór með okkur einhverja bölvaða vitleysu og við enduðum í brúðkaupsveislu. þar stóðu brúðkaupsgestir í tröppunum og meinuðu okkur inngöngu þó svo að grenjandi rigning væri úti. ég skil barasta ekkert í því af hverju þau vildu ekki fá okkur inn... við enduðum með að fá far með einhverjum wedding singer á réttan stað. Inga Þyri fórnaði sér fyrir hópinn og daðraði við hann alla leiðina svo við þyrftum ekki að borga. skál fyrir þér Inga! Dálítið vafasamt reyndar þar sem hann var með barnastól í bílnum... Reunionið var osom (minnir mig). Bekkurinn minn fékk medalíu fyrir bestu ástundun (þ.e. fyrir mætingu á reunionið, ekki í skólann ...augljóslega). svo fórum við með strætóum niður í bæ. ég fékk fljótlega þá snilldarhugmynd að labba bara heim. þá var ekkert hægt að fá mig ofan af því. ég er þess vegna mjög fegin að búa ekki í breiðholti.
  • 9. september: afmæli hjá Guggu.
  • 10. september: hér ætlaði ég að taka viku í að safna kröftum áður en ég byrjaði að vinna. í staðinn varð ég bara veik. það sem jók enn á pirring minn var að í garðinum voru menn að laga einhvern árans vegg. þeir gátu ekki verið venjulegir iðnaðarmenn og mætt seint / ekki, nei þeir þurftu að mæta og byrja að bora í vegginn kl. 8, DING! á hverjum morgni alla vikuna.
  • 11. september: veik og pirruð
  • 12. september: veik og pirruð
  • 13. september: veik og pirruð
  • 14. september: veik og pirruð
  • 15. september: fór með hjaltinskí upp í sumarbústað
  • 16. september: hitti bekkinn á kaffihúsi þar sem menn reyndu að pússla saman hvað hefði gerst á reunioninu.
  • 17. september: byrjaði að vinna. sem ég elska. allt kvöldið áhyggjulaust. gallinn er þó sá að þegar maður kemur heim, eftir að hafa setið fyrir framan tölvuskjá allan daginn, er maður ekkert æstur í að kveikja á tölvunni.
  • 18. september: vinna og keypti mér kort í Laugum.
  • 19. september: vinna
  • 20. september: vinna og fór á handboltaleik
  • 21. september: vinna og fór í fitumælingu. komst þá að því að fituprósenta mín var jafn há og kvennanna sem keppa í The Biggest Looser. litla systir kom þá með þá frábæru kenningu að ég væri nú samt sem áður 70% mjó. hehe... ég ákvað þá að líta bara á það þannig.
  • 22. - 23. september: við hjálmar fórum í rómantíska helgarferð til Flúða í tilefni að 8 ára samvistarafmæli voru. (áttum bara Flúðir eftir)
  • 24. september: vinna
  • 25. september: vinna. svo eftir vinnu þá gerðu kvensurnar í vinnunni sér glaðan dag og fengu talnaspekinginn ógurlega, Hermund Rósinkrans til að koma og skemmta sér. skemmst er frá því að segja að honum þótt ég hin versta manneskja. það eina sem ég man eftir að hann hafi sagt jákvætt við mig var að ég væri góð í tungumálum. ég held reyndar einmitt að tungumál séu mitt lakasta fag. hvað um það. maðurinn sagði að ég væri manneskja sem væri erfitt að treysta á, ég væri óstundvís og að ég pirraði mig mjög mikið á smáhlutum sem aðrir tækju ekki einu sinni eftir... það er nefnilega það! ég hefði móðgast við þetta síðasta ef ég hefði ekki verið orðin svona tipsí. svo spurði hann mig hvort ég væri nýgift. þar komu lgreinilega í jós yfirnáttúrulegir hæfileikar hans, hann tók örugglega bara ekkert eftir hringnum. anyways. þá fékk hann afmælisdaginn og nafnið hans hjalta og byrjaði að reikna svona eitthvað saman einhverjar tölur á blað. það fyrsta sem hann sagði var efasemdarfullt "neeeei"! svo spurði hann hvað við værum búin að vera lengi saman. svo spurði hann, fullur efasemda, hvort rómantíkin væri enn til staðar. næst sagði han mér að 45% sambanda lyki eftir 7-10 ár. þá sagði hann mér að 75% sambanda lyki eftir 20 ár... já hann var hress! svo leist honum ekkert á að við værum að fara að gifta okkur næsta sumar. bara hreint ekki. hann sagðist reyndar ætla að reikna hvort það hentaði kannski hjalta betur en sagði svo bara "nei". hehe... já já. hressandi.
  • 26. september: vinna
  • 27. september: vinna. þar að auki tókst mér að yfirstíga mjög svo skiljanlegan ótta minn við förðunarfræðinga. fyrir þá sem ekki tengja strax nefni ég eitt orð... sæskrímslið!!! Karaten tók mig sem sagt í smink í skólanum hjá sér. eftir 3 sveittar og taugatrekkjandi klukkustundir var útkoman bara hreint ekki sem verst. hjamsi vildi meira að segja taka mynd af mér þegar ég kom heim! greyið, maður er greinilega alveg hættur að hafa sig til...
    fyrir ykkur sem hafið áhuga á að líta út eins og kvikmyndastjörnur þá er síminn hjá Karin 869-1877 og hún tekur ekki nema litlar 500.000 kr. fyrir mínútuna. spottprís!
  • 28. september: vinna og handboltaleikur
  • 29. september: reyndi að læra fyrir vörnina á ritgerðinni minni en komst að því að ritgerðin mín er svona aaaagalega leiðinleg líka. súúúúr. hefði reyndar getað sagt mér það þegar hjallmundur komst ekki einu sinni í gegnum lokaorðin (sem eru 3 blaðsíður). um kvöldið fór ég í mat einhvers staðar, samkvæmt litlu svörtu bókinni, en ég man ekki lengur hvar.
  • 30. september: reyndi aftur að komast í gegnum ritgerðina mína. komst að lokum  niður bls. 80. átti þá ekki nema 40 bls. eftir... ælan byrjuð að leka út um nefið af leiðindum.
  • 1. október: jæja loksins komin í sama mánuð. vann og tókst svo rétt svo að komast í gegnum ritgerðina áður en ég leið út af af leiðindum einum.
  • 2. október: vann og varði ritgerðina. það gekk svona bara líka ljómandi vel. mesta furða. enda hafa umsjónarkennarinn og prófdómarinn e.t.v. ekki komist í gegnum ritgerðina (frekar en ég) og því ekki getað bent á allt skítmixið. finnst það reyndar afar líklegt.
  • 3. október: vinna
  • 4. ostóber: vinna
  • 5. október: vinna og fasteignaráðstefnan víðfræga.
  • 6.-7. október: hef ekki höggmynd hvað ég gerði þessa helgina. finnst þó líklegt að bróðurparturinn hafi farið í boðskortið í útskriftarveisluna. enda tónlistin tímasett upp á sekúndu, ef þið tókuð ekki eftir því. meistaraverk þótt ég segi sjálf frá. ef einhver les þetta og er ekki búinn að fá slíkt boðskort þá hlýtur mér að finnast viðkomandi aaaagalega leiðinleg/-ur þar sem ég bauð held ég öllum sem ég þekki. neeei djók, sendu mér þá línu. átti ekki póstfangið hjá öllum svo ég sagði fólki að láta póstinn berast. kannski finnst þeim sem ég sendi póstinn á þú vera leiðinleg/-ur. ekki ólíklegt reyndar.
  • 8. október: vinna
  • 9. október: vinna
  • 10. október: vinna
  • 11. október: vinna
  • 12.-15. október: helgarferð til Berlínar með vinnunni. það var ammmeiiisín. ég hef nú oft rómað vinnufélaga mína á þessari síðu svo ég ætla að stilla því í hóf í þetta sinn en mæ líbe gott hvað það var gaman. svo hefur líka bæst í hópin kvenlöffa sem er hinn mesti töffari og kynnti mig fyrir nýjum drykk, djúpsprengju. maður sem sagt kaupir sér hálfan lítra af bjór og vodkastaup og skellir staupinu ofan í bjórinn og drekkur í botn. ofurmengunninn þurfti vitaskuld að sanna sig fyrir samverkamönnunum og vera fljótari en karlpeningurinn að ljúka úr glasinu og fór svo og keypti sér annað! maður er cold as ice. svo fór auðvitað hellings peningur í ferðinni í búðir. maður varð nú að kaupa sér eitthvað fullorðinslegt. kom m.a. heim með þrennar svartar buxur í farteskinu. svo keypti ég mér svona knallstuttar buxur eins og þykja víst móðins. hjalapenjo spurði mig af hverju ég væri að stelast í nærbuxurnar hans þegar hann sá mig í þeim...
    við fórum líka í þriggja klst skoðunarferð með leiðsögumanni um borgina og fórum til Sachsenhausen sem voru fyrstu Nazistabúðirnar, þar sem Leifur Müller var. Já og svo tókst okkur Daniel Isebarn og Tómasi tískulöggu að komast inn í ekta gettó-partý í Austur-Berlín! Þá var sko ferðin fullkomnuð. Meira ruglið. Ekki vissi ég að aðrir vinahópar stunduðu ljótudansakeppni og þemadans en ég þurfti ekki einu sinni að stinga upp á því þarna! svo enduðum við kvöldið á tilfinningaþrungnum söng við lagið wind of change. svo fórum við danival heim en skildum tómas eftir í austur-berlín þar sem hann um nóttina týndi veskinu sínu...
  • 16. október: vinna
  • 17. október: vinna og handboltaleikur. (já ég er ein af handboltamellunum)
  • 18. október: vinna
  • 19. október: vinna
  • 20.-21. október: ég fór á handboltaleik á laugardeginum. annars man ég svei mér þá bara ekki hvað ég gerði um síðustu helgi. sennilega eitthvað útskriftarstúss. jú ég bjó a.m.k. til meiri háttar playlista fyrir útskriftina.
  • 22. október: vinna
  • 23. október: vinna
  • 24. otkóber: vinna
  • 25. október: vinna og veiktist. ég nefnilega veikist nánast alltaf þegar eitthvað skemmtilegt er í uppsiglingu. hver man ekki eftir því þegar ég var í árshátíðarnefnd vinabandalagsins fyrir stærstu árshátíð(-arferð;) sem haldin hafði verið innan bandalagsins, og veiktist svo og komst ekki með. mögulega kemst ég ekki einu sinni í eigin útskrift á laugardaginn. ég vil því biðja ykkur, lesendur góðir, að sameinast í bæn mér til handa. spennum greipar og förum með þau orð sem við öll þekkjum svo vel: "faðir vor. hjálpaðu ingunni að komast í útskriftina sína. amen."
  • 26. október: veik heima, fór ekki í vinnuna. afboðaði mig í útskriftarhádegisverð lagadeildarinnar, 100 ára afmæli LOGOS, kokteil hjá listafrænku hans hjalma sem er að opna listasýningu hérna heima og á landsleikinn í handbolta. er þess í stað heima að blogga um hvað ég er búin að gera síðustu 2 mánuði. (þar kom sem sagt skýringin á því af hverju allt í einu kemur blogg).
  • 27. október:

heitt!

 

Jæja, farin aftur að móka... Munið bara: "Kæri Guð..."


» 16 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 22:23:13 / Ofurmengunnin

bara varð að segja frá

Ég var á fasteignamálþingi í Súlnasal og hver haldið þið að hafi verið sá eini sem kom með spurningu (fullyrðingu)??? Jújú, Fasti sjálfur!!! :lol:

» 5 hafa sagt sína skoðun