» 3 hafa sagt sína skoðun
Æ ég veit ekki... Man einhver hvað gerðist þarna?
Annars var ég eflaust í betra standi en margir þar sem ég lenti í ótal "afvatnandi" atvikum. Ég var að minnsta kosti ekki eins ölvuð og húlíóinn í fráhnepptu skyrtunni!
Til að byrja með fór hárið á mér í uppreisn og ég þurfti þar af leiðandi að láta laga og bæta fram eftir öllum degi. Var í klippingu frá klukkan hálf 3 til rúmlega 6 og missti þar með af bekkjarpartýinu! Svo þegar ég kom út var ég að sjálfsögðu búin að fá feita stöðumælasekt, þótt ég hafi farið út tvisvar sinnum til að fá nýjan miða á meðan ég var í klippingu og hafði þá alla á mælaborðinu! Engin miskunn! Mér tókst þó að vera komin í kokteilinn klukkan 7, en hann byrjaði klukkan 6. Nema hvað, þá var bara áfengið búið! Maður átti sem sagt bara að vera að splæsa á barnum í klukkutíma þangað til að maturinn yrði borinn á borð! Fátæki námsmaðurinn sem ég er smyglaði að sjálfsögðu rauðvínsflösku með sér. Hún var að sjálfsögðu tekin af mér... Öll... Áður en ég var svo mikið sem búin að hella í eitt glas!!! Note to self: ekki skilja korktappa eftir uppi á borði!
Sem betur fer var félagsskapurinn til fyrirmyndar. Tjahh... eða svona kannski meiri hlutinn af félagskapnum. Nefnum engin nöfn...
» 10 hafa sagt sína skoðun
Ég þekki eina sem fékk hómmeid hvítlauksmarineraðar lambalundir með smjörsteiktum sveppum, bökuðum timjankartöflubitum og perutómötum og hvítlaukssósu í gær... und salada!
Svo fék hún líka Ben&Jerry´s í eftirrétt yfir 2 áður óséðum þáttum af Lost!!! ...og kúr! Mmmmm...
» 11 hafa sagt sína skoðun
Með þetta sérvitringaklukk... Ég er bara enginn sérvitringur. Nefnið mér eitt!
Hættið svo að reyna að draga aðra niður í svaðið með ykkur, þið þarna... sérvitringar!
» 9 hafa sagt sína skoðun
Orkuátak Latabæjar heldur áfram.
Ég fór í gær í heimsókn til næringarfræðings. Fannst mér það nokkuð merkilegur titill á konunni þar sem hún var sjálf mjórri en tannstöngull og hárið á henni virtist vera að detta af. Ég velti því fyrir mér hvort ég ætti kannski að gefa henni einhver næringartips...
Margt var áhugavert við þessa heimsókn. Tilgangurinn var reyndar ekki að fá nein næringarplön (þar sem ég hefði líklegast ekki tekið mark á þeim hvort eð er, út af útlitinu á greyið konunni ), heldur að vega og meta. Kom í ljós að Mengunnin mátti þyngjast um 7 kílógrömm og væri hún þá samt sem áður undir þeim mörkum sem ákjósanlegt þykir!!!
In jor feis Hilmar Gunnarsson!!!
Ég veit reyndar ekki hversu mikið mark ég á að taka á konunni, þar sem hún kallaði mig einnig fíngerða! (Körfubolta- / sveitakonan innra með mér var tæp á að móðgast.) Hún hefur kannski bara verið svona að fram komin af næringarskorti að hún hefur verið með óráði. Kannski var ég líka að græða á því að daman sem var á undan mér var í dááálítið stærri kantinum!?!
Hvað um það... Who´s the fatso now Mr Gunnarsson!?!
» 6 hafa sagt sína skoðun
Þetta minnir mig bara á þegar það var bekkjarferð hjá 7-A og ég hellti óvart mjólk yfir litla bróður hans Magga og hann kallaði "góður" yfir allt. Hann var 2 ára!!! Hitt orðið sem hann kunni var einmitt "mamma".
» 4 hafa sagt sína skoðun
Ég var að lesa blaðið um daginn og þar var m.a. viðtal við nýkrýndan herra Ísland. Frístundirnar sagði hann fara í að flísaleggja íbúðina, kærustuna o.m.fl. (Helga og Hrund, þessi var sérstaklega fyrir ykkur!)
Annað sem ég las í blaðinu var grein einhvers íþróttaspegúlants vegna greinar sem hafði verið birt á EM-síðunni um það hver væri besta handboltaþjóð Skandinavíu. Þar hneykslaðist hann á því að í greininni hefði ekki hefði verið minnst einu orði á Ísland. Landafræðitékk!
Svo ég víki að einhverju öðru þá er greinilegt að kosningar til stúdentaráðs eru í nánd. Fólk (með barmmerki) sem maður hefur kannast við síðan í grunnskóla, en aldrei verið málkunnugt, farið að heilsa manni. Svona gerast víst kaupin á Eyrinni.
Að lokum er skemmtilegt frá því að segja að ég ákvað fyrir skemmstu að taka þátt í orkuátaki Latabæjar. Hefur það nú staðið yfir í um 1 1/2 viku og hef ég þyngst um 1 1/2 kíló... Horfur eru því á því að þegar kortið mitt rennur út hafi ég þyngst um 12 kíló... ...og svo sprengdi ég utan af rassinum á mér nýjustu (og jafnframt uppáhalds-) gallabuxurnar mínar. Já, heimur versnandi fer...