Krákan krunkar úti...
18.07.2007 08:05:11 / Ofurmengunnin

Hvað svo?

Svo kom allt í einu gott veður um síðustu helgi! Síðustu helgina hans Hjalla í bænum. Kominn tími til, búið að rigna í þrjár vikur eða síðan hann kom hingað. Þá var það heldur ekkert smá! Bara 30° og skínandi! Þar sem þetta var fyrsta sólbaðið okkar í sumar brunnum við að sjálfsögðu. Herra og frú humar, hvít að innan en rauð að utan! 8) Töff!

Við fórum líka í skreppitúr til Nancy í Frakklandi. Fórum á sjálfan Bastilludaginn þannig að við bjuggumst nú við hálfgerðum 17. júní. Okkur mætti aftur á móti autt torg og auðir garðar. Fagurt engu að síður. Þó ekki eins fagurt og Lækjartorgið heima... eða hvað!?!

Stanislav-torgið í Nancy

Annars er Hjalti farinn en mamma og pabbi komin í staðinn. Kósí að sjá gömlu aftur. Þau voru líka of krúttleg turtildúfurnar þegar við Örgeir sóttum þau aaaðeins tipsí úr lestinni, hehe...
Stefnum að því að keyra norður í hland í dag og fara og synda í einhverjum uppistöðulónum. Um það síðar...

Over,
I.

Maja skrifaði
Krúttilísur! Myndirnar skemmtilegar! :D Hvenær er svo von á þér heim? Smassaði næstum á þig um miðja nótt þegar ég var að taka nokkur dansspor heima á fróni um síðustu helgi (skrapp í stutta helgarferð), áður en þruman benti mér vinalega á að þú værir í útlandinu ennþá!
Ingunn skrifaði
Oooo það hefði verið gaman að vera með ykkur þrumunni (og jafnvel krulluhausnum líka og Pálínunni!?!) Ég kem heim 16. ágúst. Ritgerðarskil eru 4. sept. Spurning í hversu miklu stressi maður verður.
Jólastrympa skrifaði
Það er eitthvað svo .... svo kvenlegt .... og skemmtilegt ... að ganga undir gælunafninu Þruman ..... Ég upplifi mig sem mikla dömu og hefðarfrú við þá óhefðbundnu nafngift :D
Nanna Ýr skrifaði
Mér finnst Lækjartorg flottara sko...;) En já fer þetta ekki að verða ágætt hjá þér í bili af útlandaverunni? Ég hef náttulega ekki séð þig síðan ég veit ekki hvenær?!!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.