Krákan krunkar úti...
12.01.2008 16:43:50 / Ofurmengunnin

Allt að gerast en ekkert inni á þessari síðu...

Vá, ég var búin að gleyma að ég ætti þessa síðu... Ég held að ég sé farin í pásu... Takk og bless.

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.11.2007 22:46:37 / Ofurmengunnin

Toff sem aldrei fyrr!

2 stadreyndir sem taka tarf til athugunar: a) Eg er ad blogga ur nyja iPhone-simanum minum! (hot hot hot) b) Hann tekur ekki vid sms-um fra siminn.is. Get hins vegar fengid sms fra Vodafone.is. Fleira var tad ekki i bòli.

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.11.2007 23:39:34 / Ofurmengunnin

NÝJAR FRÉTTIR - NÝJAR FRÉTTIR!!!

Mér hafa borist uppfærslur á dagskránni síðustu 2 mánuði:

  • 14. september, að kvöldi til, átti ég rómantískan kvöldverð með frænku minni Kussu á ekki Friday´s heldur Tuesday´s.
  • Helgina 6.-7. október fór ég á sjoppíngsprí með litlu systur, alsæl yfir fyrstu útborguninni (sem var fyrir mistök tvöföld og ég leiðrétti það ekki við vinnuveitandann, takk fyrir takk).

Annars er það helst í fréttum að ég á eftir að búa í þessari rottuholu uns ég kveð þetta líf. Það eina góða við hana er að maður fær ókeypis sellótónleika alltaf á kvöldin ofan af efri hæðinni... jibbíkajei mf!

Bless kúkakrakkar!

P.S. Það er enginn búinn að bjóða mér í partý næstu helgi. Eruð þið að segja að ég sé feit eða!?!

P.P.S. Ég ætlaði að gerast mega-pæja og keypti mér svona hot-pants, þ.e. knallstuttar buxur. Hjalti bara hló að mér (hryssingslega) og spurði af hverju ég væri að stelast í nærbuxurnar hans... Hmmmf!


» 2 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 18:58:18 / Ofurmengunnin

afsakið hlé

Ég hef ekki getað bloggað því netið hefur legið niðri og Hjalti bannaði mér að restarta roudernum því allar stöðvarnar á Digital Íslandi voru allt í einu inni... Var svo sem í lagi, ég þurfti þá ekki að gagnast honum á kvöldin á meðan... Nei ég segi svona... 

Takk elsku vinkonur mínar og fjölskylda og Hjalþi fyrir hjálpina við útskriftina. Þið eruð númer eitt og því verður ekki breytt. Kiss - kiss. Ég skulda ykkur öllum feita graða. (Nema pabba - fyllti bílinn hans af bensíni í gær.) Takk líka allir sem mættu. Mikið var nú gaman að sjá ykkur öll. :D Öll vanræktu börnin mín. Æ lov jú oool.

Annars var útskriftarveislan laus við alla skandala. Við Rakvél reyndum oft að espa fólk upp í ruglið en það eina sem mætti teljast til skandals var að hurðarhúnn týndist af einni hurðinni. Ég sem var búin að taka pening út úr hraðbanka fyrir partýið spes til að borga hugsanlegar skaðabætur. Jæja jæja. Ég skemmti prýðisvel engu að síður. Fékk að sjá mynd af brjóstum og alles!

Túddls.

Stöllurnar saman


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 14:06:53 / Ofurmengunnin

engin fyrirsögn

Jamm og jæja. Nú eru liðnir 2 mánuðir frá því að ég bloggaði eitthvað af viti. Engu að síður hafa 57 manns heimsótt síðuna í dag... Það staðfestir einungis grun minn um að þessir teljarar séu nú eeeeitthvað mis. Fyrir þá staðföstu ætla ég engu að síður að blogga um hvern einasta dag síðustu 2 mánuði. Here goes:

  • 24. ágúst: skrifa ritgerð
  • 25. ágúst: skrifa ritgerð
  • 26. ágúst: skrifa ritgerð
  • 27. ágúst: skrifa ritgerð
  • 28. ágúst: skrifa ritgerð og barnaafmæli hjá Elísabetu Maríu
  • 29. ágúst: skrifa ritgerð
  • 30. ágúst: skrifa ritgerð
  • 31. ágúst: skrifa ritgerð
  • 1. september: skrifa ritgerð og barnaafmæli hjá Júlíusi Kára
    (Ath að barnaafmæli eru orðinn tíðari viðburður í vinahópnum en áfengisdrykkjuselskapur. Þykir mér það hnignun mikil og er ég farin að reyna að koma mér inn í vinahóp litlu systur minnar í staðinn þar sem hún er flutt til Akureyrar. Staðkvæmdarvara /-vinkona.)
  • 2. september: skrifa ritgerð
  • 3. september: ritgerð í prentun
  • 4. september: gleðidagur - skil á ritgerð!
  • 5. september: sótti norska(n) frænda minn út á flugvöll og keyrði með honum norður í sveit til smalamennsku. var vegna anna ekki búin að undirbúa nein umræðuefni (önnur en einkamálarétt) og ekki búin að rifja upp neina norsku. 6 klukkutímar. Fékk einnig hraðasekt upp á 30 milljónir. (Hefði a.m.k. eins getað verið 30 milljónir miðað við fjárhag minn.)
  • 6. september: pabbi og mamma smíðuðu í sumar nýjan pall og komu fyrir heitum potti í garðinum í sveitinni. Nú vantar bara þráðlaust net og þá er ég flutt þangað! 6. september fór mikið í pottinn.
  • 7. september: aftur suður. handboltaleikur hjá hjalapenjo.
  • 8. september: reunion hjá Verzló! ég fór fyrr um daginn á annan handboltaleik hjá hjalapenjó þannig að ég mætti 2 klst seinna en aðrir í bekkjarfyrirpartýið (sem byrjaði kl. 5). þar fyrir sakir kepptust bekkjarfélagar mínir við að koma mér í gírinn. ég man ekki fjölda áfengra drykkja lengur en í minningunni er ég að hreykja mér af því að vera búin að taka 10 staup (sem hefur þá gerst á 2 klst). minningarnar frá kvöldinu eru því glefsukenndar. ég man að við fórum með leigubíl á reunionið, nema hvað leigubíllinn fór með okkur einhverja bölvaða vitleysu og við enduðum í brúðkaupsveislu. þar stóðu brúðkaupsgestir í tröppunum og meinuðu okkur inngöngu þó svo að grenjandi rigning væri úti. ég skil barasta ekkert í því af hverju þau vildu ekki fá okkur inn... við enduðum með að fá far með einhverjum wedding singer á réttan stað. Inga Þyri fórnaði sér fyrir hópinn og daðraði við hann alla leiðina svo við þyrftum ekki að borga. skál fyrir þér Inga! Dálítið vafasamt reyndar þar sem hann var með barnastól í bílnum... Reunionið var osom (minnir mig). Bekkurinn minn fékk medalíu fyrir bestu ástundun (þ.e. fyrir mætingu á reunionið, ekki í skólann ...augljóslega). svo fórum við með strætóum niður í bæ. ég fékk fljótlega þá snilldarhugmynd að labba bara heim. þá var ekkert hægt að fá mig ofan af því. ég er þess vegna mjög fegin að búa ekki í breiðholti.
  • 9. september: afmæli hjá Guggu.
  • 10. september: hér ætlaði ég að taka viku í að safna kröftum áður en ég byrjaði að vinna. í staðinn varð ég bara veik. það sem jók enn á pirring minn var að í garðinum voru menn að laga einhvern árans vegg. þeir gátu ekki verið venjulegir iðnaðarmenn og mætt seint / ekki, nei þeir þurftu að mæta og byrja að bora í vegginn kl. 8, DING! á hverjum morgni alla vikuna.
  • 11. september: veik og pirruð
  • 12. september: veik og pirruð
  • 13. september: veik og pirruð
  • 14. september: veik og pirruð
  • 15. september: fór með hjaltinskí upp í sumarbústað
  • 16. september: hitti bekkinn á kaffihúsi þar sem menn reyndu að pússla saman hvað hefði gerst á reunioninu.
  • 17. september: byrjaði að vinna. sem ég elska. allt kvöldið áhyggjulaust. gallinn er þó sá að þegar maður kemur heim, eftir að hafa setið fyrir framan tölvuskjá allan daginn, er maður ekkert æstur í að kveikja á tölvunni.
  • 18. september: vinna og keypti mér kort í Laugum.
  • 19. september: vinna
  • 20. september: vinna og fór á handboltaleik
  • 21. september: vinna og fór í fitumælingu. komst þá að því að fituprósenta mín var jafn há og kvennanna sem keppa í The Biggest Looser. litla systir kom þá með þá frábæru kenningu að ég væri nú samt sem áður 70% mjó. hehe... ég ákvað þá að líta bara á það þannig.
  • 22. - 23. september: við hjálmar fórum í rómantíska helgarferð til Flúða í tilefni að 8 ára samvistarafmæli voru. (áttum bara Flúðir eftir)
  • 24. september: vinna
  • 25. september: vinna. svo eftir vinnu þá gerðu kvensurnar í vinnunni sér glaðan dag og fengu talnaspekinginn ógurlega, Hermund Rósinkrans til að koma og skemmta sér. skemmst er frá því að segja að honum þótt ég hin versta manneskja. það eina sem ég man eftir að hann hafi sagt jákvætt við mig var að ég væri góð í tungumálum. ég held reyndar einmitt að tungumál séu mitt lakasta fag. hvað um það. maðurinn sagði að ég væri manneskja sem væri erfitt að treysta á, ég væri óstundvís og að ég pirraði mig mjög mikið á smáhlutum sem aðrir tækju ekki einu sinni eftir... það er nefnilega það! ég hefði móðgast við þetta síðasta ef ég hefði ekki verið orðin svona tipsí. svo spurði hann mig hvort ég væri nýgift. þar komu lgreinilega í jós yfirnáttúrulegir hæfileikar hans, hann tók örugglega bara ekkert eftir hringnum. anyways. þá fékk hann afmælisdaginn og nafnið hans hjalta og byrjaði að reikna svona eitthvað saman einhverjar tölur á blað. það fyrsta sem hann sagði var efasemdarfullt "neeeei"! svo spurði hann hvað við værum búin að vera lengi saman. svo spurði hann, fullur efasemda, hvort rómantíkin væri enn til staðar. næst sagði han mér að 45% sambanda lyki eftir 7-10 ár. þá sagði hann mér að 75% sambanda lyki eftir 20 ár... já hann var hress! svo leist honum ekkert á að við værum að fara að gifta okkur næsta sumar. bara hreint ekki. hann sagðist reyndar ætla að reikna hvort það hentaði kannski hjalta betur en sagði svo bara "nei". hehe... já já. hressandi.
  • 26. september: vinna
  • 27. september: vinna. þar að auki tókst mér að yfirstíga mjög svo skiljanlegan ótta minn við förðunarfræðinga. fyrir þá sem ekki tengja strax nefni ég eitt orð... sæskrímslið!!! Karaten tók mig sem sagt í smink í skólanum hjá sér. eftir 3 sveittar og taugatrekkjandi klukkustundir var útkoman bara hreint ekki sem verst. hjamsi vildi meira að segja taka mynd af mér þegar ég kom heim! greyið, maður er greinilega alveg hættur að hafa sig til...
    fyrir ykkur sem hafið áhuga á að líta út eins og kvikmyndastjörnur þá er síminn hjá Karin 869-1877 og hún tekur ekki nema litlar 500.000 kr. fyrir mínútuna. spottprís!
  • 28. september: vinna og handboltaleikur
  • 29. september: reyndi að læra fyrir vörnina á ritgerðinni minni en komst að því að ritgerðin mín er svona aaaagalega leiðinleg líka. súúúúr. hefði reyndar getað sagt mér það þegar hjallmundur komst ekki einu sinni í gegnum lokaorðin (sem eru 3 blaðsíður). um kvöldið fór ég í mat einhvers staðar, samkvæmt litlu svörtu bókinni, en ég man ekki lengur hvar.
  • 30. september: reyndi aftur að komast í gegnum ritgerðina mína. komst að lokum  niður bls. 80. átti þá ekki nema 40 bls. eftir... ælan byrjuð að leka út um nefið af leiðindum.
  • 1. október: jæja loksins komin í sama mánuð. vann og tókst svo rétt svo að komast í gegnum ritgerðina áður en ég leið út af af leiðindum einum.
  • 2. október: vann og varði ritgerðina. það gekk svona bara líka ljómandi vel. mesta furða. enda hafa umsjónarkennarinn og prófdómarinn e.t.v. ekki komist í gegnum ritgerðina (frekar en ég) og því ekki getað bent á allt skítmixið. finnst það reyndar afar líklegt.
  • 3. október: vinna
  • 4. ostóber: vinna
  • 5. október: vinna og fasteignaráðstefnan víðfræga.
  • 6.-7. október: hef ekki höggmynd hvað ég gerði þessa helgina. finnst þó líklegt að bróðurparturinn hafi farið í boðskortið í útskriftarveisluna. enda tónlistin tímasett upp á sekúndu, ef þið tókuð ekki eftir því. meistaraverk þótt ég segi sjálf frá. ef einhver les þetta og er ekki búinn að fá slíkt boðskort þá hlýtur mér að finnast viðkomandi aaaagalega leiðinleg/-ur þar sem ég bauð held ég öllum sem ég þekki. neeei djók, sendu mér þá línu. átti ekki póstfangið hjá öllum svo ég sagði fólki að láta póstinn berast. kannski finnst þeim sem ég sendi póstinn á þú vera leiðinleg/-ur. ekki ólíklegt reyndar.
  • 8. október: vinna
  • 9. október: vinna
  • 10. október: vinna
  • 11. október: vinna
  • 12.-15. október: helgarferð til Berlínar með vinnunni. það var ammmeiiisín. ég hef nú oft rómað vinnufélaga mína á þessari síðu svo ég ætla að stilla því í hóf í þetta sinn en mæ líbe gott hvað það var gaman. svo hefur líka bæst í hópin kvenlöffa sem er hinn mesti töffari og kynnti mig fyrir nýjum drykk, djúpsprengju. maður sem sagt kaupir sér hálfan lítra af bjór og vodkastaup og skellir staupinu ofan í bjórinn og drekkur í botn. ofurmengunninn þurfti vitaskuld að sanna sig fyrir samverkamönnunum og vera fljótari en karlpeningurinn að ljúka úr glasinu og fór svo og keypti sér annað! maður er cold as ice. svo fór auðvitað hellings peningur í ferðinni í búðir. maður varð nú að kaupa sér eitthvað fullorðinslegt. kom m.a. heim með þrennar svartar buxur í farteskinu. svo keypti ég mér svona knallstuttar buxur eins og þykja víst móðins. hjalapenjo spurði mig af hverju ég væri að stelast í nærbuxurnar hans þegar hann sá mig í þeim...
    við fórum líka í þriggja klst skoðunarferð með leiðsögumanni um borgina og fórum til Sachsenhausen sem voru fyrstu Nazistabúðirnar, þar sem Leifur Müller var. Já og svo tókst okkur Daniel Isebarn og Tómasi tískulöggu að komast inn í ekta gettó-partý í Austur-Berlín! Þá var sko ferðin fullkomnuð. Meira ruglið. Ekki vissi ég að aðrir vinahópar stunduðu ljótudansakeppni og þemadans en ég þurfti ekki einu sinni að stinga upp á því þarna! svo enduðum við kvöldið á tilfinningaþrungnum söng við lagið wind of change. svo fórum við danival heim en skildum tómas eftir í austur-berlín þar sem hann um nóttina týndi veskinu sínu...
  • 16. október: vinna
  • 17. október: vinna og handboltaleikur. (já ég er ein af handboltamellunum)
  • 18. október: vinna
  • 19. október: vinna
  • 20.-21. október: ég fór á handboltaleik á laugardeginum. annars man ég svei mér þá bara ekki hvað ég gerði um síðustu helgi. sennilega eitthvað útskriftarstúss. jú ég bjó a.m.k. til meiri háttar playlista fyrir útskriftina.
  • 22. október: vinna
  • 23. október: vinna
  • 24. otkóber: vinna
  • 25. október: vinna og veiktist. ég nefnilega veikist nánast alltaf þegar eitthvað skemmtilegt er í uppsiglingu. hver man ekki eftir því þegar ég var í árshátíðarnefnd vinabandalagsins fyrir stærstu árshátíð(-arferð;) sem haldin hafði verið innan bandalagsins, og veiktist svo og komst ekki með. mögulega kemst ég ekki einu sinni í eigin útskrift á laugardaginn. ég vil því biðja ykkur, lesendur góðir, að sameinast í bæn mér til handa. spennum greipar og förum með þau orð sem við öll þekkjum svo vel: "faðir vor. hjálpaðu ingunni að komast í útskriftina sína. amen."
  • 26. október: veik heima, fór ekki í vinnuna. afboðaði mig í útskriftarhádegisverð lagadeildarinnar, 100 ára afmæli LOGOS, kokteil hjá listafrænku hans hjalma sem er að opna listasýningu hérna heima og á landsleikinn í handbolta. er þess í stað heima að blogga um hvað ég er búin að gera síðustu 2 mánuði. (þar kom sem sagt skýringin á því af hverju allt í einu kemur blogg).
  • 27. október:

heitt!

 

Jæja, farin aftur að móka... Munið bara: "Kæri Guð..."


» 16 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 22:23:13 / Ofurmengunnin

bara varð að segja frá

Ég var á fasteignamálþingi í Súlnasal og hver haldið þið að hafi verið sá eini sem kom með spurningu (fullyrðingu)??? Jújú, Fasti sjálfur!!! :lol:

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 18:55:31 / Ofurmengunnin

langur tími enginn sjór

Það er orðið svo langt síðan ég bloggaði síðast að tölvan er hætt að muna lykilorðið mitt inn á síðuna.

Sjitt Amsterdam!!! 8) OSOM! Við hittumst sem sagt gamla gengið frá Osló í Amsterdam, þar sem Elvira býr. Falleg borg. Við byrjuðum létt á því að fara í siglingu um skurðina. Eftir það var öllum þykjustuleik hætt og við fórum beint í rauða hverfið! hahahaha... Á fyrsta degi! Það er furðuheimur get ég sagt ykkur. Vorum þarna um miðjan dag bara og konur út í glugga og kynlífsleikhús og einn staður sem var þekktur fyrir að menn borguðu fyrir að borða banana úr... einmitt já! 8| Íúúú... Elvira auðvitað dró okkur á píp-show! Hahahaha... Það er svona hringlaga klefi með helling af litlum klefum í kring og svo borgar maður 2 evrur og þá sér maður inn í klefann og þar er eitthvað... sprell! Við fengum að fara 2 og 2 saman því gaurinn sem sá um þetta sá að við vorum greinilega amatörar, hehe... Sem ég tek sem hrósi, nota bene. Þannig að við Sofie vorum saman í klefa sem var ekkert mjög sniðugt þar sem við vorum þær sem vorum búnar að fá okkur öl og við sprrrrungum úr hlátri þegar við sáum loks inn í klefann!!! :lol: Hlógum okkur máttlausar. Það var samt ekkert kannski merkilegt inni í klefanum. Alsber stelpa að glenna sig. Þetta voru bara svo fáránlegar kringumstæður eitthvað. Nema hvað svo greinlega voru klefarnir illa (ekkert) hljóðeinangraðir og gellan heyrði alveg í okkur flissa, þannig að hún ákvað að fara að ögra okkur og sneri sér gagngert að okkur með einhverjum tunguhreyfingum og sprelli, þannig að við hlógum auðvitað ennþá meira! :lol: Aí karamba! ahhhh....
Annars var mega krípí að það var hægt að sjá inn í hina klefana, þ.e.a.s. maður sá hina sem voru að horfa á hana. Það voru subbbbbbulegir menn. Við komumst á þá niðurstöðu að það væri líklegast versta starf í heimi að vinna við að þrífa þessa klefa... :|

Svo fórum við næsta dag á stöndina. Elvíra er að vinna á einhverjum snobb-strandarklúbbi sem við fórum og kíktum á. Svo var veðrið líka sæði, sem var fín tilbreyting frá rigningunni í Lúx. Við fengum algjöra prinsessumeðferð þarna. Þarna var hægt að leigja risastór rúm (sem við komumst 4 fyrir í;) á 15 evrur á klukkutímann sem við fengum að vera í alveg fríkeypis. Svo fengum við líka fríkeypis áfengi, sem var ekki leiðinlegt. 8)

Um kvöldið fórum við svo á klikkaðasta veitingastað sem ég hef á ævi minni farið á! Supper Club. Snilldin ein! Þetta var allt rosa dularfullt. Við fórum inn í eitthvað þröngt hliðarsund og inn um dyr úr gulli! Þar varð maður að vera mættur á slaginu 7, því annars mátti maður ekki koma inn! Svo voru allir gestirnir mændir út og feitur, sköllóttur (mjög svo augljóslega) samkynhneigður maður með svört hringlaga gleraugu eins og Valli í "hvar er Valli" raðaði gestum niður á "borð" eftir svalleika! Við fengum að sjálfsögðu að sitja á besta stað í húsinu, enda ofursvalar. 8) Svo voru allir þjónarnir einhverjar rosa týpur; einn svartur mega heitur klæðskiptingur, einn samkynhneigður í indverskum bláum kyrtli og bláum converseskóm o.s.frv. o.s.frv. Ég eiginlega vil ekki segja ykkur meira... Þið verðið eiginlega að fara á þennan veitingastað. Þetta var bara lífsreynsla út af fyrir sig! Þetta var klárlega skemmtilegasti veitingastaður sem ég hef í lífi mínu farið á og undarlegasti! Ja hérna hér... Þangað fer ég sko aftur með einhver saklaus fórnarlömb.

Gengeggegengegengeeggegeng:

Sofie, Rea, Elvira og ég


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 08:56:35 / Ofurmengunnin

Fílamaðurinn á heimleið...

Ég svaf á vinstri hliðinni um daginn. Það virðist a.m.k. vera þar sem ég fékk 6 moskítóbit á hægri hliðina frá hnéskel fram í vísifingur (sem varð tvöfaldur). Þannig að í fyrrinótt ætlaði ég að leika á fluguna og dúðaði mig alla undir sæng. Það virkaði ekki betur en svo að ég vaknaði með 4 bit í andlitinu. :| Þannig að ég verð ekki mjög sexy þegar ektamaður minn tekur á móti mér Á MORGUN!!! :D


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.08.2007 08:54:26 / Ofurmengunnin

...og meira í þeim dúr.

Mengunninni ber nú hálfgerð skylda til þess að þykja þessi flottur. ;) Ef hann kannski slakaði aðeins á toppnum maðurinn. Mmmmm.... Shake your bon bon baby! hehe...

Nei, ég segi svona...


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 14:09:29 / Ofurmengunnin

Það er nefnilega það!

Hehe og þetta er eitthvað sem Erlu finnst skemmtilegt gæti ég trúað! Stöllurnar bara mættar!!! :lol:


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 19:26:20 / Ofurmengunnin

Lokafærsla

Ég vil leiðrétta sjálfa mig hér með. Ég er ekki að fíla techno. Það eru hins vegar nokkur lög sem flokkast sem danstónlist sem eru alveg að gera sig. Mögulega þó mikið til vegna sælla minninga sei sei já já... :D ...og meintir techno-klúbbar eru víst engir techno-klúbbar. Guði sé lof, ég hélt að sál minni væri steypt í glötun!

Svo ætla ég að demba inn, í einni færslu, öllu sem ég er búin að vera að dunda mér að, svo ég hafi ekki afsökun til að hætta að skrifa og fara að blogga. Sá við sjálfri mér þarna, haaa! Nú þarf ég bara að læra að læsa Perez Hilton... :$ Set inn linkinn hérna til þess að reyna að draga aðra niður í svaðið með mér: www.perezhilton.com. :klikk:

All[ir ]a[]Vega. Á fimmtudagskvöldið var ég víst búin að plana supplies fyrir söstrene krön. Air var nefnilega að spila hérna í Lúxemborg. Þeir voru með útitónleika niðri í gili í gamla klausturgarðinum. Svo ég fór á stúfana (þó ekki Dóru og Sigga Hrannar) og pantaði borð á veitingastað efst á gilbrúninni, úti á svölunum hjá þeim. Sniðug!?! Mér fannst það. Svo þegar við komum þangað var sem sagt limgerði í kringum allar svalirnar og nada útsýni. Pljúss að rétt hjá voru greinilega lestarteinar. Útsýni var því ekkert og hljómburður takmarkaður. :( Ég bætti þeim það þó upp með því að vera með stand-up (skilst mér). Ég er bara orðin eins og 14 ára krakkarnir í hænuskapnum. Það er a.m.k. hagkvæmt! Vara ykkur samt hér með við að bjóða mér vínglas með matnum ef þið asnist einhvern tímann til að bjóða mér í mat... Annars vorum við með ansi hreint skemmtilega túristaorðabók með okkur, t.d. með frösum sem maður þarf að kunna á veitingastöðum. Þeir voru mjög fyndnir. Það voru kannski þrír venjulegir frasar, "ég ætla að fá", "reikninginn takk" og eitthvað svoleiðis. Svo var restin bara "hvað þarf ég eiginlega að bíða lengi eftir matnum" og "ég ætla ekki að bíða lengur, ég er farin" og "maturinn er of heitur / kaldur / saltur" o.s.frv. o.s.frv. og "ég vil fá að tala við framkvæmdastjórann"... :lol: Þessir Frakkar! Þetta finnst þeim maður verða að kunna!
Air voru reyndar ennþá að spila þegar við vorum búnar að borða þannig að við löbbuðum út á eina af brúnnum yfir gilið og sáum seinni hlutann af tónleikunum. (Tek á mig rottuskapinn.) Endalaust getur þessi borg heillað mig...

Á föstudeginum fórum við svo út að borða aftur og "á djammið", eins og unga fólkið segir víst. Ég er víst ekki ung lengur. Lilja er a.m.k. farin að miða við mig þegar hún talar um gamalt fólk! "Systir mín, sem er sko tuuuhhddugofimmára!!!, hún ..." Þannig að ég svaraði nafninu "vindsæng" það sem eftir leið helgarinnar. (Hér er ég að vonast til þess að einhverjir frönskumælandi fatti djókið... Gugga? Rétt að taka fram að höfundarétt á brandaranum á Hjalti Þór Pálmason. Ég gef ykkur viku í að giska.) Ég held nú samt að ég hafi alveg staðist henni Lilju litlu snúning. Söstrene krön voru a.m.k. þokkalega heitir Teitir. 8) Ég féll enn og aftur í kramið hjá Marokkóbúum. Ég vissi þó a.m.k. í þetta skiptið að þeir eru með öllu AFAR varasamir! Ekki alveg að nenna sjálfsmorðshótanapakkanum aftur, hehe... (Vísa í blogg frá 3. maí 2004 ef einhver er ekki að tengja.)

Á laugardeginum svaf ég út í fyrsta skipti síðan ég kom hingað.is! Gisti nefnilega ekki heima hjá mér og var því laus við bæði ruslabílinn og kirkjuklukkurnar. Það reyndar gerði það að verkum að ég svaf til hálf 3 um daginn! Það er nefnilega það! Þannig að það varð ekkert úr plönum okkar að fara til Fjandans (sem er bær hérna í Lúxemborg, heitir reyndar Vianden). Í staðinn fékk ég þær til að koma með mér í búðir. Eitthvað sem ég hef ekkert gert hérna. Nema klukkan var auðvitað orðin svo margt að ég hafði 20 mínútur þegar við loks vorum komnar af stað. Tókst þó að kaupa peysu, kjól, bol og belti. Ágætist árangur það á 20 mínútum vil ég meina. Hehe og timbruð í þokkabót! Svo sendi ég söstrene með þetta heim þannig að það er spurning hvort ég kannist eitthvað við klæðin þegar ég kem heim, hehe... Um kvöldið fórum við svo aftur út að borða, nema hvað. Og aftur út á lífið, nema hvað! 8) Það kvöldið komst ég í persónuleg kynni við eldspúarann sem ég held að ég hafi verið búin að minnast á áður. Þessi gamli með gleraugun og skallann sem er heeeelmassaður og 4 cm á hæð. Svalur gaur! Hann var eitthvað að röfla í barþjón sem var að afgreiða mig fyrir að gera handa mér pina colada (nýi drykkurinn minn - alveg engin framför frá Malibu-inu! hehe) þegar þau áttu að vera hætt að gera kokteila því það voru svo margir að bíða. Svo hendir hann klaka inn í brjóstmálið á mér! 8| Þá brutust fram gamlir valkyrjutaktar af Klakanum! Hann var reyndar bak við barborðið þannig að ég gat ekki kýlt hann þannig að ég tók fjórir-fingur-undir-höku-strjúka-fram-og-setja-upp-ítalskan-mafíósadrápssvip. Gamli (í orðsins fyllstu) var ekki sáttur við það svo hann fór að sprauta á mig með vatnsbyssu á fullu!!! :whut: Svo þegar ég ætlaði seinna að sættast við hann (því hann hann var jú í sterkri stöðu sem skaffari veiga) þá vildi hann að ég myndi leyfa honum að kasta öðrum klaka inn á brjóstmálið! Ég hélt nú síður! Maður spyr sig hvers konar fordæmi fyrirrennarar sínir frá Norðurlöndunum hafi sett! :| Annars voru söstrene krön enn á ný heitir Teitir. Krakkinn var meira að segja fenginn til að dansa uppi á palli!!! :lol: Sjííí hvað það var fyndið! Til skiptis hún og svo fertugur maður! Hahahaha... Ekkert smá mikið af gráfiðringum þarna maður, usss! Hún tók sig þó betur út en fertuga konan sem var ekki að vinna þarna en mætti samt til að dansa á pallinum. Var á föstudagskvöldið í stripparadressi (bleikum spandexnærbuxum í stíl við kjólinn/bolinn) og á laugardagskvöldið mætti mín með hatt og alles, en komst ekki að fyrir fertuga pabbanum í ham! :lol: Ahhhh... snilld! :D Svo lét feitur og sveittur maður senda mér drykk! Þannig að ég neyddist til þess að sitja og spjalla við hann í klukkutíma... Neeeei djók! Hjalti tens??? :lol: Ég vinkaði nú bara takk og lét mig hverfa. Enda ekki auðkeypt... Þarf a.m.k. 2 drykki!

Á sunnudeginum tókst mér svo að skrifa sem aldrei fyrr, þrátt fyrir að hafa ekki komið heim fyrr en 6 um morguninn! Kökubiti þegar heimildir eru á íslensku er ég búin að komast að. Verst að það eru um 5% af mínum heimildum. :$ Jæja, morgens gehts los...

Enda á brandara frá Völlu Sverris: Já, þeir eru bara með lunda á matseðlinum!?! :lol: (Hér stóla ég enn og aftur á frönskumælandi félaga mína... Gugga? ;) )

Takk fyrir og bless og endilega segið mér samt eitthvað skemmtilegt  þótt það komi ekki fleira frá mér í bili.

I.

P.S. Stubbabrauð?

P.P.S. Skelli inn einu myndinni af söstrene krön sem er birtingarhæf (þ.e. engir svitablettir *hóst* Lilja *hóst*) :D

Söstrene krön á góðri stundu


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 07:21:10 / Ofurmengunnin

Boring smoring

Andagift er í lágmarki þessa dagana. Þetta verður því mjög leiðinleg færsla. Ykkur er engu að síður velkomið að skilja eftir athugasemdir sem gætu lappað upp á þessa annars mjög svo leiðinlegu færslu... og síðu... og líf... neeei djók!

Gömlu eru farin heim. Agalega notalegt að hafa þau. Við fórum í ferð upp að vötnunum, eins og ég var búin að segja frá. Svo fórum við til Trier, sem er bær í Þýskalandi, til að versla (eða þau meira). Síðasta laugardagskvöld var svo djasshátíð niðri í  Grund, sem er svæðið niðri í gilinu. Hellingur af sviðum og tónlistamönnum og fólki og Bratwurst og Bier. Það er ekki lítið sem gilið verður heillandi þegar það er svona lýst upp neðan frá. Mezzoforte var að spila líka. Stimmung! Við fórum líka aftur í sirkusinn. Já, ég er 9 ára! En pabbi er það greinilega líka, því hann hló svo mikið að tárin runnu niður kinnarnar á honum. Krúttlegur er hann... og þau bæði, að leiðast eins og einhverjir táningar.

Á morgun er ég svo með planað smá supplies handa systrum mínum. Vonandi að það gangi bara upp. Um helgina verður svo farið á techno-klúbb. Ég er alveg dottin inn í þessa evrópsku danstónlist eftir veru mína í Osló og hér. ...ég ætti auðvitað ekki að vera að skrifa þetta á alnetinu. Þetta er mér eflaust síst til framdráttar. Æ, splittar ekki diff.

Jæja, tilli tilli pungs...

I.


» 9 hafa sagt sína skoðun

20.07.2007 07:02:03 / Ofurmengunnin

My name is Earl... :S

Ég hefði ekki átt að fara þarna upp í vötnin. :| Jú jú voða fallegt og líflegt og skútur og árabátar og veiðimenn og börn að leik og sól... Öll þessi köngulóadráp mín í sumar komu nefnilega hressilega aftan að mér.
Þær koma einhvern veginn fljúgandi ofan úr loftinu hérna í vinnunni og ég veiði þær í límið á post-it-inu og krem þær. Ætli þær hafi þá ekki kallað í dauðaslitrunum: bööööööggs asssembleeeeeí, svona eins og í Anchorman... Svo hafa þær safnast saman og ráðist á mig allar í einu þarna hjá vötnunum. :$ Þetta var samt greinilega bara viðvörun hjá þeim því eitt bitið er rétt á mörkum þess að vera í smettinu á mér. Þetta er ögrun, klár ögrun. Nú er bara að ákveða hvort maður eigi að hörfa eða fylkja liði og hefna... :klikk:


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 08:05:11 / Ofurmengunnin

Hvað svo?

Svo kom allt í einu gott veður um síðustu helgi! Síðustu helgina hans Hjalla í bænum. Kominn tími til, búið að rigna í þrjár vikur eða síðan hann kom hingað. Þá var það heldur ekkert smá! Bara 30° og skínandi! Þar sem þetta var fyrsta sólbaðið okkar í sumar brunnum við að sjálfsögðu. Herra og frú humar, hvít að innan en rauð að utan! 8) Töff!

Við fórum líka í skreppitúr til Nancy í Frakklandi. Fórum á sjálfan Bastilludaginn þannig að við bjuggumst nú við hálfgerðum 17. júní. Okkur mætti aftur á móti autt torg og auðir garðar. Fagurt engu að síður. Þó ekki eins fagurt og Lækjartorgið heima... eða hvað!?!

Stanislav-torgið í Nancy

Annars er Hjalti farinn en mamma og pabbi komin í staðinn. Kósí að sjá gömlu aftur. Þau voru líka of krúttleg turtildúfurnar þegar við Örgeir sóttum þau aaaðeins tipsí úr lestinni, hehe...
Stefnum að því að keyra norður í hland í dag og fara og synda í einhverjum uppistöðulónum. Um það síðar...

Over,
I.


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 14:07:52 / Ofurmengunnin

Áfram með smjerið

Jæja jæja, ekki mikil hrifning með síðasta blogg, ég held þá bara áfram.

Ida mín blessunin er farin heim. Áður en hún fór bauð hún mat heim til sín og svo fórum við í bæinn á eftir.
Við fórum líka í sirkus. Ætla ekki að segja frá því. Getið skoðað myndirnar.

Annars gerðumst við boðflennur á miðvikudeginum áður en hún fór heim. Við smygluðum okkur inn í sumarpartý fyrir starfsmenn Evrópudómstólsins. Krimminale! Þetta var bara eins og þegar maður var að reyna að komast inn á staðina þegar maður var lítill. Stimmung! Við vorum með passana okkar um hálsinn, sem gilda auðvitað bara í EFTA-dómstólinn, nema að við snerum þeim öfugt. Vorum samt búnar að hanga fyrir utan (í skjóli frá dyravörðunum, bak við trukk, hehe...) í þónokkurn tíma áður en við lögðum í þetta. Það hefði verið aðeins lúðó að vera rekinn burtu með skít og skömm þegar maður er dúddúfimm ára, hehe... Við tókum meira að segja gamla góða útlendingatrixið. Nálguðumst dyraverðina fjóra fíleflda og fórum að blaðra saman á norsku! Yngri heimildarmenn síðunnar segja að það að þykjast vera útlendingur sé enn notað í Reykjavíkinni.
Anyways, partýið var fínt, hellingur af snittum og góðgæti og áfengið flóði! Já það flóði! Við Ida nýttum okkur það vitaskuld.
Það sem mér fannst samt fyndnast við þetta partý var það að þrátt fyrir að partýið væri hjá hinum virðulega Evrópudómstól og að við Ida værum líklegast yngstu manneskjurnar þarna inni, þá var spiluð FM-tónlist! Ég var alveg að búast við djass eða einhverju svoleiðis, en nei nei, fínu konurnar bara að dilla sér við JT! Sé það gerast heima. Partý hjá Hæstarétti og allir að dansa við Nelly Furtado!

Jæja, fleira var það ekki að sinni á þessum mjög svo morkna mánudegi.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 28